Póstlisti
Skráðu þig á póstlistann okkar!
Til lesenda
Eftir að ákveðið var að Norðurslóð kæmi framvegis út með breyttu sniði, þ.e. að á hverju ári komi einungis út eitt tölublað í desemberbyrjun í stað 12, varð útgefendum blaðsins fljótlega ljóst að það hefði ýmsa vankanta í för með sér. Eitt vandamálið snéri að hinum vinsælu gátum í jólablaðinu. Með engu móti væri hægt að krefja lesendur um að bíða í heilt ár eftir því að komast að lausnum gátanna. Þessi vefur leysir þá flækju, sem og aðrar.
Til að mynda er hægt að skrá sig á póstlista og fá allar fréttir af jólablaðinu 2026 þegar líða fer á árið.
Í desemberblaðinu 2025 voru lesendur beðnir um að skrá sig á póstlista, annaðhvort með því að senda línu á nordurslod22@gmail.com eða hér á síðunni.
Enn fremur er hér tengill inn á Timarit.is þar sem nálgast má öll blöð Norðurslóðar frá upphafi og til dagsins í dag. Svo er aldrei að vita nema hér birtist stakar fréttir eða lengri viðtöl þegar sá gállinn er á aðstandendum blaðsins.
Gömul tölublöð eru aðgengileg á Tímarit.is.